Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 29. júní 2016 20:28
Arnar Geir Halldórsson
Chelsea að ganga frá kaupum á Michy Batshuayi
Kann að fagna
Kann að fagna
Mynd: Getty Images
SkySports telur sig hafa heimildir fyrir því að belgíski sóknarmaðurinn Michy Batshuayi sé við það að ganga í raðir enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea.

Samkvæmt sömu heimildum á hinn 22 ára gamli Batshuayi að hafa fengið leyfi til að yfirgefa æfingasvæði belgíska landsliðsins til að undirgangast læknisskoðun Chelsea í Bordeaux.

Batshuayi skoraði 17 mörk fyrir Marseille í frönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann hefur undanfarið verið orðaður við Crystal Palace, West Ham og Tottenham.

Chelsea þarf að punga út rúmum 30 milljónum punda fyrir Batshuayi sem er á leiðinni að verða fyrstu kaup Antonio Conte hjá Lundúnarliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner