Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mið 29. júní 2016 18:56
Arnar Daði Arnarsson
Valsvellinum
Elín Metta: Bjóst ekki við því að vinna 6-1
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elín Metta Jensen skoraði þrennu í 6-1 sigri Vals á Þór/KA í 6. umferð Pepsi-deildar kvenna. Þetta voru hennar fyrstu mörk í Pepsi-deildinni í ár.

Sigurinn var öruggur og kom líklega mörgum á óvart enda voru liðin jöfn á stigum fyrir leikinn..

Lestu um leikinn: Valur 6 -  1 Þór/KA

„Maður bjóst ekkert endilega við því að vinna 6-1. En þetta gekk mjög vel. Við vorum þolinmóðar og héldum boltanum vel innan liðsins. Það voru ekki mörg moment sem við vorum að missa einbeitinguna," sagði Elín Metta.

„Við ætluðum að pressa á þær og sækja stíft og halda boltanum vel innan liðsins, við töluðum um það frá síðasta leik. Við vildum halda boltanum betur og mér fannst það takast."

Elín vildi ekki meina það að það hafi verið erfitt að koma inn í leikinn eftir slæmt tap gegn Stjörnunni í síðustu umferð og að hafa dottið úr bikarnum í leiknum þar á undan.

„Mér fannst það ekki. Ég upplifi alltaf góða stemningu innan liðsins og við vorum duglegar að vera jákvæðar og það skiptir máli þegar sterkir einstaklingar innan hópsins eru duglegar að peppa aðra og það smitar út frá sér."

Þrátt fyrir að hafa skorað þrjú mörk í leiknum hefði Elín hæglega getað skorað fleiri mörk og klikkaði til að mynda einu dauðafæri, þegar hún var komin ein gegn markinu.

„Ég var að veðja á leikinn," sagði Elín Metta kímin og hélt áfram:

„Neinei, ég veit það ekki. Maður vildi passa sig á því að skora ekki of mikið," sagði Elín Metta að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner