Gunnlaugur Jónsson var afar kátur eftir 4-2 sigur á Stjörnunni í Pepsi deild karla í kvöld.
„Þetta var frábær sigur. Dálítið kaflaskiptur leikur en þetta er gríðarlega sætt. Við ræddum eftir KR leikinn að við litum á EM fríið sem nýtt upphaf."
„Mér fannst vera jafnræði með liðunum í fyrri hálfleiknum. Í byrjun seinni hálfleiks erum við of slakir og það var eitthvað andleysi en við náum jöfnunarmarki og þá kemur aukakraftur í okkur,"
„Garðar er frábær framherji og þó hann hafi verið kaldur var hann kominn með einhver 3-4 mörk en nú er hann með 5 mörk í tveim leikjum. Það er alvöru," sagði Gunnlaugur.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir