Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mið 29. júní 2016 09:37
Magnús Már Einarsson
Heimir: Þetta gengishækkar allan íslenskan fótbolta
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég sagði fyrir leik að sigur á Englandi myndi breyta lífi leikmanna og okkar allra. Athyglin hefur breyst og þessi keppni gengishækkar íslenskan fótbolta," sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, á fréttamannafundi í dag.

Allra augu beinast að íslenskum fótbolta eftir frækinn 2-1 sigur á Englandi á mánudag.

„Þetta gengishækkar ekki bara þessa leikmenn heldur alla íslenska knattspyrnumenn og allan íslenskan fótbolta. Þetta á að vera hagur fyrir félögin heima."

Heimir segir að næsta verkefni sé að halda áfram á sömu braut til að Ísland haldi áfram að vegna vel á alþjóðlegum vettvangi.

„Menn eru settir á hærri stall og núna er ráin mun hærri hja íslenska landsliðinu. Það sem við ætlumst til af íslenska landsliðinu er miklu meira núna. Þetta hefur allt breyst. Við þurfum að halda hærri standard en áður var."

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner