Frakkar nota Evrópumótið í fótbolta til að minna fólk á hættur alnæmis og hvað það getur verið mikilvægt að nota viðeigandi verjur.
Ísland fær stórt hlutverk í auglýsingunni en á götum Nice er veggspjald með mynd af tveimur mönnum.
Annar er málaður í íslensu fánalitunum og hinn er skreyttur belgíska fánanum. Það sem meira er, þeir virðast báðir smitaðir af alnæmi.
Hvers vegna Ísland var valið í þessa áhugaverðu auglýsingu skal ósagt látið en myndina má sjá hér í fréttinni.
Athugasemdir