Franski varnarmaðurinn Laurent Koscielny, sem leikur með Arsenal á Englandi, er orðaður við spænska stórliðið Real Madrid.
Líklegt er að varnarmaðurinn Raphael Varane fari frá Madrídarliðinu til Bayern Munich og er Koscielny ætlað að koma í staðinn fyrir hann.
Koscielny, sem er þrítugur, hefur spilað í hjarta varnar franska landsliðsins á EM og mun því að öllum líkindum mæta íslenska liðinu á sunnudag.
Hann hefur verið í herbúðum Arsenal frá árinu 2010.
Athugasemdir