Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. júní 2016 12:27
Þorsteinn Haukur Harðarson
Norwich vill fá Jóa Berg
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er í dag orðaður við enska knattspyrnuliðið Norwich City.

Jóhann, sem hefur staðið sig vel með Íslandi á Evrópumótinu, hefur leikið seinustu tvö ár með Charlton í Championship deildinni, en félagið féll úr deildinni í vor og má telja fullvíst að Jóhann sé á förum frá félaginu.

South London Press greinir síðan frá því í dag að Norwich City hafi áhuga á að fá leikmanninn í sínar raðir.

Norwich, sem félll úr úrvalsdeildinni í vor, seldi Nathan Redmond til Southampton nýverið og er Jóhann hugsaður sem eftirmaður hans.

Jóhann skoraði sex mörk og átti 13 stoðsendingar fyrir Charlton í vetur.

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner