Gareth Southgate gæti tekið tímabundið við enska landsliðinu á meðan leit stendur yfir að eftirmanni Roy Hodgson.
Hodgson sagði upp eftir 2-1 tapið gegn Íslandi í fyrrakvöld.
Enska knattspyrnusambandið ætlar að gefa sér góðan tíma í að finna eftirmann Hodgson og því gæti Southgate tekið tímabundið við.
Southgate er í dag þjálfari U21 árs landsliðs Englendinga. Hann gæti stýrt A-landsliðinu gegn Slóvakíu í fyrsta leiknum í undankeppni HM í september og jafnvel lengur á meðan leit stendur yfir að nýjum þjálfara.

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er sagður vera mögulega á óskalista enska knattspyrnusambandsins en samningur hans við Arsenal rennur hins vegar ekki út fyrr en næsta sumar.
Athugasemdir