Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. júní 2016 14:31
Þorsteinn Haukur Harðarson
Wenger neitar að tjá sig um Lacazette
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, vill ekki tjá sig um hvort hann hafi áhuga á að fá franska knattspyrnumanninn Alexandre Lacazette til félagsins.

Hinn 25 ára gamli hefur spilað með Lyon í heimalandinu frá árinu 2010 og hefur hann skorað 72 mörk í 172 leikjum fyrir félagið.

Hann hefur verið orðaður við Arsenal undanfarið en talið er að félagið þurfi að borga um 40 milljónir evra fyrir leikmanninn.

"Ég vil hvorki játa né neita því að ég hafi áhuga á leikmanninum. Ef ég segi eitthvað mun það koma af stað slúðursögum," sagði Wenger við Canal+ Sport í Frakklandi.

Lacazette hefur spilað 10 landsleiki fyrir Frakkland en var ekki valinn í hópinn fyrir EM.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner