Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. júní 2017 13:28
Elvar Geir Magnússon
Leikur Afríku og KFR á morgun - Rangæingar mjög ósáttir við niðurstöðu KSÍ
Úr leik hjá Afríku.
Úr leik hjá Afríku.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allt var á suðupunkti í Breiðholtinu í gær þar sem leikur Afríku og KFR (Knattspyrnufélag Rangæinga) í 4. deildinni átti að fara fram. Þjálfari Afríku var ekki sáttur við dómarann sem KSÍ setti á leikinn eins og fram kom í viðtali sem birtist fyrr í dag.

Afríka vildi ekki spila leikinn með umræddum dómara og var leik hætt eftir níu mínútur. Fram kemur á vef KSÍ að dómari leiksins, Slava Titov, hafi metið aðstæður þannig að ekki væri hægt að halda leik áfram vegna utanaðkomandi truflunar, þar sem þjálfari Afríku hélt afram að stjórna liði sínu eftir að hann hafði fengið brottvísun.

Ákveðið hefur verið að leikurinn fari fram á morgun frá 9. mínútu með sömu byrjunarliðum og á sama leikstað. Þar er tekið tillit til greinar 15.6 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Nýr leikur fer því fram föstudaginn 30. júní kl. 20.00 á Hertz vellinum. Þar sem það var dómarinn sem flautaði leikinn af þá verður hann leikinn aftur.

Jónas Bergmann Magnússon, formaður meistaraflokksráðs KFR, er allt annað en sáttur við þessa niðurstöðu.

„Það er verið að refsa okkur fyrir fíflalæti Afríkumanna og klaufaskap dómarans en KSÍ er greinilega ekki á sama máli. Við eigum að vera með sama byrjunarlið en það er erfitt í 4. deildinni þegar menn eru búnir að gera ráðstafanir á föstudagskvöldi. Þetta er ekki atvinnumannadeild. Það hefði að minnsta kosti verið hægt að hafa samráð við okkur um hvenær hentaði að spila þennan leik fyrst það var niðurstaðan," segir Jónas.

„Mér finnst KSÍ einfaldlega vera að refsa liði sem kemur ekki nálægt þessu máli. Það hefði mátt sýna fordæmi þar sem svona hegðun er ekki látin viðgangast."

Ekki er búið að gefa út hver dæmir leikinn á morgun þegar þessi frétt er skrifuð.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner