Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 29. júlí 2014 15:30
Magnús Már Einarsson
Antoine Griezmann í Atletico Madrid (Staðfest)
Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur keypt sóknarmanninn Antoine Griezmann frá Real Sociedad.

Hinn 23 ára gamli Griezmann skrifaði undir sex ára samning við Atletico Madrid en hann kostar félagið 24 milljónir punda.

Griezmann skoraði 16 mörk með Sociedad á síðasta tímabili og hann átti einnig fína spretti á HM í Brasilíu.

Atletico Madrid keypti einnig framherjann Mario Mandzukic frá Bayern á dögunum en spænsku meistararnir eru að vinna í að fylla skarð Diego Costa sem fór til Chelsea fyrr í mánuðinum.
Athugasemdir
banner
banner