Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. júlí 2014 12:49
Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik kallar Rakel Ýr til baka úr Fylki (Staðfest)
Rakel Ýr í leik með Fylki
Rakel Ýr í leik með Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Breiðablik hefur kallað Rakel Ýr Einarsdóttur til baka úr láni hjá Fylki en þetta gerist sama dag og liðin mætast í Pepsi-deild kvenna.

Liðin eru í harðri baráttu um 2. sæti deildarinnar, Fylkir í 2. sæti með 20 stig og Blikar í þriðja með 19. Ljóst er að liðið sem vinnur leikinn í kvöld sem hefst 19:15 á Kópavogsvelli mun enda umferðina í 2. sæti.

Rakel Ýr var lánuð frá Breiðabliki til Fylkis í maí og hefur spilað 10 leiki í deild og bikar í sumar.

Hún er uppalin hjá Leikni en gekk til liðs við Breiðablik í júlí árið 2011 og hefur spilað 25 leiki fyrir liðið og skorað eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner