Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
   þri 29. júlí 2014 22:28
Karitas Þórarinsdóttir
Hekla: Hún var rosalega fljót niður
Hrafnhildur Hekla í leik með Fylki í sumar.
Hrafnhildur Hekla í leik með Fylki í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
,,Í fyrri hálfleik fannst mér við fara auðveldlega í gegnum þær og við komum inn í hálfleik, vorum mjög ánægðar með þetta og héldum að við þyrftum að vera þolinmóðar og þá myndi þetta koma. Þær voru svo fyrirsjáanlegar í sóknaraðgerðum sínum og við nokkuð ánægðar. Svo fáum við á okkur víti og í kjölfarið losnaði þetta hjá okkur, ég veit ekki alveg hvað klikkaði," sagði Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir fyrirliði Fylkis eftir 4-0 tap gegn Breiðabliki í kvöld.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Fylkir

Það var markalaust í hálfleik og Blikar komust lítið áleiðis gegn Fylki í fyrri hálfleik. ,,Hann var solid, við vorum þéttar og ætluðum að spila þetta á skyndisóknum og mér fannst þetta ekkert hættulegt sem þær voru að gera."

Breiðablik fékk víti í byrjun vítateigs eftir að Fanndís Friðriksdóttir féll í teignum. ,,Mér finnst allir dómar rangir gegn okkur en mér fannst þetta óþarfi, hún var rosalega fljót niður og lítil snerting," sagði Hekla um dóminn.

Nánar er rætt við hana í sjónvarpinu að ofan en Fylkir hefur spilað síðustu leiki í bláum varabúninum því þeir appelsínugulu skemmdust í þvotti. Þær frumsýndu svo nýja appelsínugula í kvöld. ,,Það er gott að vera komin aftur í orange," sagði Hekla að lokum.
Athugasemdir
banner
banner