Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 29. júlí 2014 15:41
Magnús Már Einarsson
Jay Rodriguez og Scnheiderlin fara ekki frá Southamptpon
Morgan Schneiderlin.
Morgan Schneiderlin.
Mynd: Getty Images
Ralph Krueger, formaður Southampton, segir að félagið muni ekki selja Jay Rodriguez og Morgan Schneiderlin til Tottenham.

Southampton hefur selt Rickie Lambert, Adam Lallana og Dejan Lovren til Liverpool í sumar sem og bakverðina Luke Shaw til Manchester United og Calum Chambers til Arsenal.

Stuðningsmenn liðsins eru brjálaðir og ekki urðu þeir ánægðari þegar fréttir bárust af því að Rodriguez og Scnheiderlin væru á leið til Tottenham.

Krueger neitar hins vegar þeim fréttum þó að margir stuðningsmenn Southampton taki þeirri yfirlýsingu með fyrirvara.

,,Allar fréttir um að Rodriguez og Schneiderlin séu á förum eða við séum í viðræðum um sölu á þeim eru ekki réttar. Þeir verða ekki seldir," sagði Krueger.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner