Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. júlí 2014 12:00
Magnús Már Einarsson
Jenkinson á leið til West Ham
Carl Jenkinson.
Carl Jenkinson.
Mynd: Getty Images
West Ham er við það að landa Carl Jenkinson á láni frá Arsenal.

Arsenal hefur krækt í bæði Mathieu Debuchy og Calum Chambers í sumar og því er samkeppnin um stöðu hægri bakvarðar mjög mikil.

Hinn 22 ára gamli Jenkinson fær því að fara á láni en Arsene Wenger vill ekki selja leikmanninn.

West Ham, Hull, Swansea og Sunderland hafa öll sýnt Jenkinson áhuga en samkvæmt frétt Sky mun hann leika áfram í London með Hömrunum.

Líklegt er að gengið verði formlega frá lánssamningnum í dag eða á morgun.
Athugasemdir
banner
banner