Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 29. júlí 2014 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Lið 10. umferðar: Conrad er leikmaður umferðarinnar
Courtney Conrad í leiknum gegn FH.
Courtney Conrad í leiknum gegn FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net hefur valið lið 10. umferðar í Pepsi-deild kvenna en það má sjá hér að neðan. Courtney Conrad leikmaður Aftureldingar var valin leikmaður umferðarinnar að þessu sinni en hún gaf ekki kost á sér í viðtal og því verður ekkert slíkt birt að þessu sinni eins og venja er.

Courtney Conrad átti mjög góðan leik fyrir Aftureldingu þegar liðið vann 1-0 sigur á FH í Kaplakrikanum. Um var að ræða gríðarlega mikilvægan sigur hjá Aftureldingu sem heldur þeim í von um að komast upp úr fallsætinu.

Courtney er frá Nova Scotia og var í kanadíska U20 ára landsliðsúrtakinu á sínum tíma. Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á sínum ferli og meðal annars verið valin í "Atlantic 10 All-Tournament Team" og komist í lið vikunnar hjá CollegeSoccer360.com svo eitthvað sé nefnt.

Leikir 10. umferðar:
Valur 1 - 1 Þór/KA
ÍBV 0 - 3 Selfoss
Fylkir 1 -0 ÍA
Stjarnan 1 - 0 Breiðablik
FH 0 - 1 Afturelding
Athugasemdir
banner
banner