Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   þri 29. júlí 2014 20:30
Arnar Daði Arnarsson
Markanefs-Harpa: Er ánægð með nefið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Harpa Þorsteinsdóttir, framherji Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna, var hress eftir 4-0 sigur liðsins á ÍBV í kvöld.

Stjarnan sigraði með fjórum mörkum gegn engu en Harpa gerði þrennu fyrir Stjörnuna og er þar með komin með 20 mörk í deildinni.

,,Mér fannst við eftir að við komumst yfir þá fannst mér þetta ekki spurning. Við byrjuðum samt hrikalega illa í dag og heppnar að vera ekki undir fyrsta korterið," sagði Harpa við Fótbolta.net.

,,Við erum búnar að eiga tvo stóra leiki á síðustu sex dögum og kannski situr í okkur spennufall en við vissum að þetta væri möguleiki. Við erum ekki ánægðir með að hafa látið þetta gerast en ánægðar að hafa sloppið frá þessu."

,,Við ætlum ekkert að láta þetta taka enda strax, við viljum alltaf fá sigur og erum alltaf ánægðar þegar það gerist. Ég held áfram að skora og fæ góða hjálp við það."


,,Ég hefði átt að skora fleiri því að liðið var að spila gríðarlega vel og við vorum að fá virkilega góðar sendingar í gegn."

Harpa er komin með 20 mörk eins og áður segir en hún þarf líklega að láta skoða það eitthvað nánar.

,,Ég er ánægð með þetta nef, þetta er gott nef," sagði hún ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner