Liverpool er nú í keppnisferð um Bandaríkin en leikmenn taka þátt í ýmislegu áhugaverðu með sjónvarpsstöð klúbbsins á meðan.
Daniel Sturridge og Jordon Ibe, leikmenn liðsins, fóru í spurningakeppni um Hip-Hop en þar kemur ýmislegt skemmtilegt fram.
Sturridge er afar hress í keppninni á meðan Ibe hlær að öllu sem Sturridge gerir en hægt er að sjá það hér fyrir neðan.
,,Welcome to Fatburger, home of the Fatburger, can I take your order?," segir og spyr Daniel Sturridge, meðal annars í keppninni en þar vitnar hann í gamamyndina Goodburger.
Athugasemdir