Bakvörðurinn Luke Shaw stenst ekki kröfur Louis van Gaal um líkamlegt form fyrir þá baráttu sem framundan er hjá Manchester United.
Shaw gekk í raðir United frá Southampton í sumar.
Shaw gekk í raðir United frá Southampton í sumar.
Leikmaðurinn mun tímabundið æfa einn í séræfingum til að koma honum í betra stand.
„Luke verður að vera tilbúinn og hann er það ekki núna, hann er ekki eins góðu standi og ég fer fram á. Ég setti upp sérstaka æfingaáætlun fyrir hann og hann samþykkti hana auðvitað," segir Van Gaal.
Manchester United mætir Inter í æfingaleik í Bandaríkjunum í kvöld. Wilfried Zaha á enn eftir að fá mínútur í æfingaferðinni en Van Gaal staðfestir að leikmaðurinn muni fá tækifæri til að sýna sig í kvöld.
Leikur Manchester United og Inter í kvöld hefst 23:00 og verður beint á Stöð 2 Sport 2.
Athugasemdir