Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. júlí 2014 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Stefan de Vrij til Lazio (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Lazio hefur staðfest kaupin á hollenska varnarmanninum Stefan de Vrij frá Feyenoord.

De Vrij, sem er 22 ára gamall, var einn besti varnarmaður HM sem fór fram í Brasilíu í sumar en hann lék alla leiki hollenska liðsins.

Lazio og Feyenoord komust að samkomulagi um kappann á dögunum en ítalska félagið greiðir 9 milljónir evra fyrir þjónustu hans.

Hann fór í læknisskoðun í dag áður en hann ritaði undir samning en þetta mun styrkja lið Lazio gríðarlega.

De Vrij var sterklega orðaður við Manchester United en nú er ljóst að hann fer ekki þangað.
Athugasemdir
banner