Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. júlí 2014 12:11
Magnús Már Einarsson
Vill fá 500 bestu leikmenn heims til Spánar
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Javier Tebas, forseti La Liga á Spáni, segist vilja fá 500 bestu leikmenn heims í deildina.

Gareth Bale kom til Real Madrid á 85 milljónir punda í fyrra og Luis Suarez gekk í raðir Barcelona á 75 milljónir punda á dögunum.

Tebas vill fá fleiri stórstjörnur í La Liga á komandi árum.

,,Við ætlum ekki að hætta. Við viljum 500 bestu leikmennina," sagði Tebas.

,,Við viljum hafa stærstu félögin og bestu leikmenn heims í deildinni okkar."
Athugasemdir
banner
banner