Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. júlí 2015 11:01
Magnús Már Einarsson
Abou Diaby til Marseille (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Abou Diaby, fyrrum miðjumaður Arsenal, hefur samið við franska félagið Marseille.

Hinn 29 ára gamli Diaby var mættur í læknisskoðun hjá WBA í vikunni þegar Marseille kom inn í myndina.

Í kjölfarið ákvað hann að ganga frekar til liðs við Marseille.

Diaby meiddist alls 42 sinnum á ferli sínum hjá Arsenal en hann kom til félagsins árið 2006.

„Með því að semja við Marseille getur hann náð sér á strik á nýjan leik og barist um sæti í franska landsliðinu fyrir EM 2016," sagði í yfirlýsingu frá Marseille í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner