Heimild: Norwich
Liverpool hefur lánað Andre Wisdom til nýliðanna í Norwich City.
Wisdom er 22 ára varnarmaður sem hefur leikið fyrir öll yngri landslið Englands. Þá á hann 14 leiki fyrir aðallið Liverpool en hann eyddi síðasta tímabili á láni hjá WBA.
Þetta er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Norwich í dag en félagið tilkynnti um kaup á Robbie Brady frá Hull fyrr í dag.
„Hann hefur reynslu úr Úrvalsdeildinni með tveim liðum og við erum mjög ánægðir með að hafa gengið frá þessum skiptum. Hann er fjölhæfur leikmaður sem mun auka samkeppnina í hópnum", sagði Alex Neil, stjóri Norwich.
Norwich vann sér sæti meðal þeirra bestu eftir umspil í Championship deildinni á síðustu leiktíð.
Athugasemdir