KA 1 - 1 Valur
1-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('6, víti)
1-1 Orri Sigurður Ómarsson ('22)
Valur fer áfram eftir sigur í vítaspyrnukeppni
Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn
1-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('6, víti)
1-1 Orri Sigurður Ómarsson ('22)
Valur fer áfram eftir sigur í vítaspyrnukeppni
Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn
Valur er komið í úrslitaleik Borgunarbikarsins eftir sigur á 1.deildarliði KA á Akureyrarvelli í kvöld en vítaspyrnukeppni þurfti til að útkljá leikinn.
Þar reyndist Ingvar Kale hetja Valsmanna en hann varði vítaspyrnu Josip Serdarusic á meðan leikmenn Vals skoruðu úr öllum sínum spyrnum.
Valsarar munu mæta annaðhvort KR eða ÍBV í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli þann 15.ágúst næstkomandi. KR og ÍBV eigast við annað kvöld.
Viðtöl og skýrsla úr leiknum eru væntanleg síðar í kvöld.
Athugasemdir