Ethan Mannion og Daníel Þór Ágústsson hafa gengið til liðs við Dalvík/Reyni í 2. deildinni.
Ethan er framherji sem uppalinn er hjá WBA og æfði þar með aðalliðinu þar til fyrir ári síðan.
Ethan hefur einnig leikið í neðri deildum á Englandi en hann spilaði sinn fyrsta leik með Dalvík/Reyni í 3-2 sigri á Njarðvík um síðustu helgi.
Dalvík/Reynir hefur einnig fengið miðjumanninn Daníel Þór Ágústsson í sínar raðir en faðir hans er Ágúst Þór Gylfason þjálfara Fjölnis.
Hinn 21 árs gamli Daníel var síðast á mála hjá Álftanesi en hann lék einnig með Breiðabliki og Fjölni á sínum yngri árum.
Dalvík/Reynir er í botnsætinu í 2. deildinni en liðið fær Leikni frá Fáskrúðsfirði í heimsókn í kvöld.
Athugasemdir