Chelsea hefur í annað skipti hafnað tilboði frá Everton í varnarmanninn John Stones.
Chelsea bauð á dögunum 20 milljónir punda í Stones en því tilboði var hafnað.
Nýtt tilboð Chelsea hljóðaði upp á 25 milljónir punda en því var líka hafnað.
Chelsea bauð á dögunum 20 milljónir punda í Stones en því tilboði var hafnað.
Nýtt tilboð Chelsea hljóðaði upp á 25 milljónir punda en því var líka hafnað.
Hinn 21 árs gamli Stones hefur slegið í gegn hjá Everton síðan hann kom frá Barnsley árið 2013 en hann er meðal annars kominn í enska landsliðið.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, er að horfa til framtíðar með Stones enda er farið að styttast í annan enda á ferlinum hjá fyrirliðanum John Terry.
Athugasemdir