Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. júlí 2015 14:30
Magnús Már Einarsson
Georgi Stefanov í Hött (Staðfest)
Úr leik hjá Hetti.
Úr leik hjá Hetti.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Höttur í 2. deildinni hefur samið við búlgarska framherjann Georgi Stefanov.

Stefanov er fæddur árið 1988 en hann spilaði síðast með FC Vereya í B-deildinni í Búlgaríu.

Höttur hefur einungis skorað tólf mörk í fjórtán leikjum í 2. deildinni í sumar og leitar nú leiða til að fjölga mörkunum.

Sóknarmaðurinn Ágúst Örn Arnason kom frá Fram í vikunni og nú hefur Stefanov bæst í hópinn.

Höttur tapaði 2-0 gegn Huginn í gærkvöldi en liðið er sem stendur í 6. sæti í 2. deildinni.
Athugasemdir
banner
banner