Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mið 29. júlí 2015 22:08
Valur Páll Eiríksson
Gunnar Guðmunds: Nauðsynlegt að ná í þrjú stig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Gríðarlega sáttur. Þetta var bara nauðsynlegt fyrir okkur að ná í þrjú stig hér í dag og halda í við þau lið sem eru fyrir ofan okkur og reyna að nálgast þau, missa þau ekki frá okkur. Þannig að þetta var gríðarlega mikilvægur sigur í dag og ég er gríðarlega sáttur við strákana." sagði Gunnar Guðmundsson, þjálfari Gróttu, eftir 1-0 sigur á Grindavík í kvöld.

Lestu um leikinn: Grótta 1 -  0 Grindavík

Grindavík var meira með boltann og voru í raun óheppnir að ná ekki forystunni í fyrri hálfleiknum. Í síðari hálfleik voru Gróttumenn hins vegar gríðarlega þéttir og fátt um færi fyrir Grindavík.

„Já, ég er sammála því. Það voru þarna nokkur atvik í fyrri hálfleiknum þar sem þeir fengu virkilega opin færi og við vorum heppnir þá að fá ekki jöfnunarmark á okkur. En svo náðum við að loka betur á þá í síðari hálfleiknum og þetta var meira svona klaps eða hálffæri, fyrir utan kannski í lokin þar sem Árni varði mjög vel."

Mark Gróttu í dag var einungis þeirra fimmta í sumar en þrátt fyrir það hafa þeir unnið þrjá leiki. Gunnar var spurður út í markaþurrðina.

„Alveg hárrétt, við erum búnir að skora lítið af mörkum en við höfum verið að verjast nokkuð vel. Það hefur vantað aðeins upp á hjá okkur að koma boltanum yfir línuna. Við erum líka að fá inn menn núna sem bæta aðeins sóknarleikinn hjá okkur. Viktor (Segatta) var að koma inn núna og Atli (Ottesen) kom inn í þessum leik þannig að við vorum strax orðnir miklu beittari í þessum leik en við höfum verið áður og það gefur okkur bara gott líf. Ef við höldum áfram að vera þéttir og nýtum hraðan betur eigum við eflaust eftir að ná í fleiri stig."

Viðtalið má sjá í heild sinni að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner