mið 29. júlí 2015 10:27
Magnús Már Einarsson
Mourinho svarar konu Benítez: Ættir að hugsa um mataræðið
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, og Rafael Benítez, þjálfari Real Madrid, hafa margoft eldað grátt silfur saman í gegnum tíðina.

Nú er Montserrat Seara, eiginkona Benítez, kominn inn í deilur þeirra félaga. Montserrat sagði í gær að Benítez sé enn einu sinni mættur til að taka til eftir Mourniho, nú hjá Real Madrid.

Benítez hefur áður stýrt Chelsea og Inter líkt og Mourinho en ummæli Montserrat féllu í grýttan jarðveg hjá Portúgalanum.

„Þessi kona er smá ringluð. Maðurinn hennar tók við Chelsea ef Roberto Di Matteo og hann tók við Real Madrid af Carlo Ancelotti," sagði Mourinho.

„Eina félagið þar sem eiginmaður hennar tók við af mér var Inter Milan og þar náði hann á sex mánuðum að eyðileggja besta lið Evrópu á þeim tíma."

„Ef hún myndi hugsa um mataræðið hjá eiginmanni sínum þá myndi hún ekki hafa tíma til að tala um mig."

Athugasemdir
banner
banner
banner