mið 29. júlí 2015 07:30
Hafliði Breiðfjörð
Nokkur félög í Pepsi-deildinni sýna Stefáni Ragnari áhuga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nokkur félög í Pepsi-deildinni hafa sýnt áhuga á að fá Stefán Ragnar Guðlaugsson varnarmann Fylkis í sínar raðir.

Þetta staðfesti Ólafur Geir Magnússon í stjórn knattspyrnudeildar í samtali við Fótbolta.net í gær.

Stefán Ragnar hefur ekki verið inni í myndinni hjá Fylki síðan Hermann Hreiðarsson tók við þjálfun liðsins fyrr í mánuðinum.

Stefán Ragnar er uppalinn hjá Selfossi en var í herbúðum Vals sumarið 2013. Hann gekk svo í raðir Fylkis fyrir tímabilið 2014.

Hann lék 20 leiki með Árbæjarliðinu í Pepsi-deildinni í fyrra og hafði leikið 9 leiki í sumar þegar Hermann tók við þjálfun liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner