Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. júlí 2015 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Daily Mail 
Rojo sektaður fyrir að mæta ekki í æfingaferð Man Utd
Marocs Rojo
Marocs Rojo
Mynd: Getty Images
Marcos Rojo, varnarmaður Manchester United, verður sektaður um tveggja vikna laun fyrir að mæta ekki í æfingaferð liðsins til Bandaríkjanna á föstudag eins og til stóð.

Rojo fékk frí eftir Suður-Ameríku bikarinn og átti að koma til móts við liðið um helgina, en hann mætti þó aldrei.

Ástæðan fyrir því er sú að Rojo gleymdi einafldlega að endurnýja vegabréfið sitt og var því ekki hleypt um borð í flugvélina sem átti að fara með hann til San Jose.

Louis van Gaal, stjóri Man Utd, er sagður mjög óánægður með Rojo sem verður sektaður um tveggja vikna laun fyrir vikið.

Angel Di Maria hefur einnig ákveðið að mæta ekki í æfingaferð United, en hann er á leið frá félaginu til PSG.
Athugasemdir
banner
banner
banner