Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. júlí 2015 13:00
Magnús Már Einarsson
Southampton að landa Caulker
Mynd: Getty Images
Southampton er að krækja í varnarmanninn Steven Caulker á láni frá QPR.

Toby Alderweireld er horfinn á braut úr vörn Southampton frá síðasta tímabili.

Varnarmaðurinn Florin Gardos verður einnig frá keppni næstu mánuðina.

Caulker er 23 ára gamall en hann kom til QPR frá Cardiff í fyrra.

Hann gat þó ekki hjálpað QPR að forðast fall úr ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor.
Athugasemdir
banner
banner