Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 29. júlí 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Sverrir Þór í KV (Staðfest)
Sverrir Þór (fyrir miðju) er farinn í KV.
Sverrir Þór (fyrir miðju) er farinn í KV.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Miðjumaðurinn Sverrir Þór Garðarsson hefur gengið til liðs við KV.

Sverrir Þór var fyrirliði Ægis en hann hætti hjá liðinu á dögunum.

Í fyrra spilaði Sverrir 19 leiki með Ægi en árið 2013 hjálpaði hann HK að vinna 2. deildina.

Sverrir gæti spilað sinn fyrsta leik með KV í kvöld þegar liðið heimsækir einmitt í Ægi í Þorlákshöfn.

KV hefur verið á góðu skriði í 2. deildinni að undanförnu eftir erfiða byrjun en liðið er sem stendur í 4. sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner