Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. júlí 2016 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Chilwell ekki til Liverpool - Framlengir við Leicester (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Liverpool bauð mest átta milljónir punda í vinstri bakvörðinn Ben Chilwell en Leicester vildi ekki selja.

Chilwell er aðeins nítján ára gamall og lék átta leiki á láni hjá Huddersfield Town í ensku B-deildinni á síðasta tímabili.

Búið er að staðfesta að Chilwell hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Englandsmeistarana sem gildir til 2021.

Bakvörðurinn á fjórtán leiki að baki fyrir yngri landslið Englendinga en hann hefur leikið fyrir öll landsliðin frá U18 upp í U21.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner