fös 29. júlí 2016 18:07
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: Guðlaugur Victor skoraði mínútu eftir innkomu
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Viborg 2 - 1 Esbjerg
1-0 Jonas Kamper ('53)
2-0 Oliver Thychosen ('57)
2-1 Guðlaugur Victor Pálsson ('87)

Guðlaugur Victor Pálsson kom inná þegar Esbjerg var 2-0 undir gegn Viborg í 3. umferð tímabilsins í dönsku efstu deildinni.

Guðlaugur skoraði mínútu eftir innkomu sína á völlinn en mark hans dugði Esbjerg ekki sem er stigalaust á botni deildarinnar.

Jonas Kamper og Oliver Thychosen gerðu mörk Viborg í leiknum, en gestirnir í Esbjerg fengu fleiri færi í leiknum og var nýtingin ekki upp á marga fiska.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner