Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. júlí 2016 12:00
Magnús Már Einarsson
Elvar Ægis í Fjarðabyggð (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Fjarðabyggð hefur fengið Elvar Þór Ægisson til liðs við sig fyrir átökin í Inkasso-deildinni það sem eftir er tímabils.

Elvar kemur frá uppeldisfélagi sínu Hetti en þar hefur hann spilað nánast alla sína tíð.

Elvar er miðju og kantmaður en hann hefur lítið verið með Hetti í sumar og einungis spilað þrjá leiki.

Hinn 27 ára gamli Elvar hefur oft verið í lykilhlutverki hjá Hetti en hann skoraði meðal annars átta mörk með liðinu í 1. deildinni árið 2012.

Fjaraðbyggð er sem stendur í 7. sæti í Inkasso-deildinni með 14 stig eftir 13 umferðir.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner