Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir það algjöran óþarfa að reyna að fara í einhvern feluleik varðandi John Stones. Allir viti að félagið vilji fá þennan 22 ára varnarmann Everton.
Stones var nálægt því að fara til Chelsea í fyrra en talið er að Everton vilji fá 50 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Stones var nálægt því að fara til Chelsea í fyrra en talið er að Everton vilji fá 50 milljónir punda fyrir leikmanninn.
„Allir vita að við erum að reyna að fá hann," segir Guardiola.
Stones var í enska landsliðshópnum sem tók þátt í EM 2016 en kom ekki við sögu.
Guardiola telur að Stones sé sú týpa af miðverði sem smellpassi í sína hugmyndafræði.
„Við þurfum varnarmann sem er góður að byggja upp spil með einföldum sendingum á miðjuna sem getur svo komið boltanum á sóknarmennina. Leikmenn á þessu svæði þurfa að hafa gæði," sagði Guardiola á miðvikudag.
Guardiola notaði miðjumennina Javier Mascherano og Javi Martinez sem miðverði hjá Barcelona og Bayern München. Hann hefur sagt að Fernandinho, miðjumaður City, geti vel leyst stöðu miðvarðar.
Athugasemdir