Gunnar Wigelund er genginn til liðs við Huginn eftir tvö ár hjá Aftureldingu.
Gunnar er 27 ára gamall sóknarmaður sem hefur gert 8 mörk í 31 leik fyrir Mosfellinga.
Gunnar er 27 ára gamall sóknarmaður sem hefur gert 8 mörk í 31 leik fyrir Mosfellinga.
Gunnar, sem gerði sjö mörk á síðasta tímabili, hefur ekki enn tekist að skora í sumar og vonast til að breyta því hjá Hugin, sem er í fallbaráttu Inkasso-deildarinnar.
Huginn er fjórum stigum frá öruggu sæti í deild og er aðeins búið að skora 11 mörk í 13 deildarleikjum. Gunnar á að breyta því.
Athugasemdir