Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 29. júlí 2016 11:30
Magnús Már Einarsson
Higuain: Þarf að sýna að ég sé peninganna virði
Mynd: Getty Images
Gonzalo Higuain segist ætla að sanna að hann sé peninganna virði eftir félagaskipti sín til Juventus.

Juventus keypti Higuain frá Napoli á 75,3 milljónir punda fyrr í vikunni.

Argentínumaðurinn er því þriðji dýrasti leikmaður sögunnar en einungis Cristiano Ronado og Gareth Bale hafa kostað meiri pening.

,Núna þarf ég að sýna þeim að ég sé peninganna virði sem þeir borguðu fyrir mig," sagði Higuain.

„Hvað getur maður sagt um Juventus. Þetta er félag sem er þekkt úti um allan heim. Þetta er frábært lið sem getur afrekað allt sem það vill."
Athugasemdir
banner
banner