Heimild: Football Italia
Jeremy Menez fer frá AC Milan og gengur til liðs við franska félagið Bordeaux eftir helgi.
Menez er 29 ára gamall Frakki sem á 24 landsleiki að baki og hefur á ferlinum leikið fyrir lið á borð við Monaco, Roma og PSG.
Menez er 29 ára gamall Frakki sem á 24 landsleiki að baki og hefur á ferlinum leikið fyrir lið á borð við Monaco, Roma og PSG.
Menez hefur verið einn af fáum leikmönnum Milan sem hefur staðið sig vel undanfarin tímabil, en síðustu tvö ár hefur hann skorað 18 mörk í 43 deildarleikjum spilandi á kantinum.
Kaupverðið er ótilgreint og hafa félagsskiptin ekki verið staðfest en bæði ítalskir og franskir miðlar segja fregnirnar vera pottþéttar.
Athugasemdir