Kristinn Magnús Pétursson hefur komið við sögu í þremur Pepsi-deildar leikjum með Víkingi Ólafsvík á tímabilinu.
Í fyrra lék Kristinn tólf leiki í 1. deildinni en hefur átt í erfiðleikum með að festa sig í sessi í byrjunarliðinu í ár.
Í fyrra lék Kristinn tólf leiki í 1. deildinni en hefur átt í erfiðleikum með að festa sig í sessi í byrjunarliðinu í ár.
Kristinn, sem er aðeins tvítugur, hefur því verið lánaður til Sindra. Sindri er með sextán stig eftir þrettán leiki í 2. deildinni.
Kristinn Magnús er kantmaður og var valinn efnilegasti leikmaður Ólafsvíkinga eftir síðasta tímabil.
Athugasemdir