Sevilla er búið að staðfesta komu Luciano Vietto til félagsins eftir að hann stóðst læknisskoðun og skrifaði undir samning.
Hinn 22 ára gamli Vietto virtist vera á leið til Barcelona en valdi Sevilla framyfir stórveldið.
Hinn 22 ára gamli Vietto virtist vera á leið til Barcelona en valdi Sevilla framyfir stórveldið.
„Luciano Vietto hefur staðist læknisskoðun og hefur fengið leyfi til að byrja að æfa með Sevilla," skrifaði Sevilla á Twitter.
Vietto kemur til Sevilla á láni út tímabilið en lánssamningnum fylgir kaupákvæði. Óljóst er hversu mikið Sevilla kemur til með að greiða fyrir leikmanninn, sem kostaði Atletico Madrid 20 milljónir evra fyrir ári síðan.
Athugasemdir