Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 29. júlí 2016 22:15
Ívan Guðjón Baldursson
Missti ársmiðann fyrir að nota fangamynd Adam Johnson
Mynd: Daily Mail
Max Hornby, stuðningsmaður Manchester City, gæti verið búinn að missa ársmiða sinn á heimaleiki félagsins eftir að hann lét prenta fangamynd Adam Johnson á miðann.

Johnson er dæmdur nauðgari sem lék 73 deildarleiki fyrir Manchester City en var leikmaður Sunderland þegar hann var dæmdur.

„Ég trúi ekki að City hafi samþykkt beiðnina mína, nú er ég fastur með þennan miða í heilt ár," skrifaði Hornby á Twitter eftir að hann fékk miðann sinn.

Þegar félagið komst að þessu var ársmiðinn gerður óvirkur og Hornby látinn eyða tístinu. Hornby var svo látinn birta afsökunarbeiðni á Twitter en óljóst er hvort ársmiðinn hafi verið gerður virkur aftur eða ekki.



Athugasemdir
banner
banner
banner