„Hann var fjörugur seinni hálfleikurinn,“ Sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari KA strax eftir leik. „Mér fannst við ekki nógu bneittir í fyrri hálfleik og jafnræði þo við vorum heldur sterkari. Í seinni hálfleik var þetta svo líf og dauði varðandi það að koma helvítis tuðrinu í markið og við gerðum það reyndar. Enn og aftur erum við sviknir um mark.“
Lestu um leikinn: KA 0 - 0 Haukar
Það var afar áberandi úr fréttamannastúku að boltinn fór inn fyrir marklínu, hvernig sást þetta af bekknum?
„Við sáum þetta náttúrulega engan vegin af bekknum annað en það bara að nota almenna skynsemi því að boltinn skaust svo rosalega út að hann hlyti að hafa farið töluvert inn. Hér eru menn með myndavélar og annað og þetta sést bara greinilega.“
Nánar er rætt við Bjarna í sjónjvarpinu hér að ofan
Athugasemdir