Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. ágúst 2014 15:00
Elvar Geir Magnússon
Faurlin aftur frá í langan tíma
Miðjumaðurinn Alejandro Faurlin.
Miðjumaðurinn Alejandro Faurlin.
Mynd: Getty Images
Alejandro Faurlin, Argentínumaðurinn hjá QPR, verður frá í sex til níu mánuði vegna meiðsla í hné.

Faurlin er 28 ára og lenti illa á vinstra hné í tapi liðsins gegn Burton Albion í deildabikarnum.

Harry Redknapp, stjóri QPR, segir þessar fréttir óhemju leiðinlegar en Faurlin skrifaði undir nýjan eins árs samning í sumar.

Í janúar 2012 meiddist hann á hægra hné og á því vinstra í nóvember 2013.

Hann var lykilmaður hjá QPR þegar liðið komst upp í úrvalsdeildina 2011 og var valinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum á sínu fyrsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner