Freyr Alexandersson þjálfari Leiknis var á því að um stórmeistarajafntefli hafi verið að ræða í Ólafsvík í kvöld.
"Þetta er flottur frasi. Mér fannst þetta vel leikinn leikur í kvöld, Víkingar eru vel skipulagt og gott lið. Við komum hérna og ætluðum að klára dæmið, en 0-0 voru ágæt úrslit".
"Þetta er flottur frasi. Mér fannst þetta vel leikinn leikur í kvöld, Víkingar eru vel skipulagt og gott lið. Við komum hérna og ætluðum að klára dæmið, en 0-0 voru ágæt úrslit".
Frey fannst vallaraðstæður spila inní útkomu leiksins í kvöld.
"Menn voru hræddir við völlinn fannst mér, því strax í upphafi fóru menn að renna á rassgatið, það var blautt. Yfirleitt kalla svona aðstæður á mörk svo að leikurinn varð varkár".
En það hlýtur að vera erfitt að klára ekki dæmið endanlega og tryggja Pepsi deildina á næsta ári.
"Jú, við erum orðnir ógeðslega hungraðir og getum ekki beðið eftir því að klára þetta, við trúum því að þetta klárist. Það kemur í ljós hvenær það gerist, við ætluðum að klára þetta í dag, næst er Þróttur heima og við ætlum að klára þetta þá"
Nánar er rætt við Frey í viðtalinu, um upplegg leiksins, þá leikmenn sem komu inn í byrjunarliðið í dag og frábæran stuðning sem hans fékk í kvöld. Lokaorð Freys voru:
"Það er lágmarkskrafa að við fyllum völlinn á fimmtudaginn, eru ekki 18000 manns í Breiðholtinu"
Athugasemdir