Danska félagið Bröndby er nálægt því að ganga frá samningu um að fá Hólmbert Aron Friðjónsson á láni frá Celtic. BT greinir frá þessu í dag.
Simon Makienok er á förum frá Bröndby og Hólmbert á að fylla skarð hans.
Hinn 21 árs gamli Hólmbert kom til Celtic frá Fram síðastliðinn vetur en hefur ekki náð að festa sig í sessi í aðalliði félagsins.
Hólmbert skoraði tíu mörk í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar og hann mun nú reyna fyrir sér í Danmörku.
Bröndby er í 6. sæti í dönsku úrvalsdeildinni eftir fimm umferðir.
Athugasemdir