Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 29. ágúst 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Mascherano: Di Maria einn af tíu bestu í heimi
Angel Di Maria.
Angel Di Maria.
Mynd: Getty Images
Javier Mascherano segir að Angel Di Maria geti slegið í gegn hjá Manchester United.

Di Maria gekk í raðir Manchester United á 59,7 milljónir punda í vikunni en hann og Mascherano eru félagar úr argentínska landsliðinu.

,,Ég er mikill aðdáandi hans. Hann er á meðal tíu besta leikmanna í heimi," sagði Mascherano.

,,Auk þess að valda usla í vörn andstæðinganna þá getur hann varist og hlaupið mikið. Þú getur notað hann í mörgum stöðum á vellinum."
Athugasemdir
banner