,,Mér fannst leikurinn spilast þannig að það var mikið undir hjá báðum liðum, Selfyssingarnir gátu náttúrulega tryggt sig uppi en mér fannst þeir ekkert afgerandi betri í þessum leik. Þetta var leikur þar sem skjálfti var í báðum og hvorugt lið vildi taka áhættur. sagði Páll Kristjánsson, þjálfari KV eftir 1-3 tap á Selfossi í kvöld sem gott sem tryggði hans lið niður í 2. deild.
,,Við vissum að stig var gott fyrir þá svo að við þurftum að færa okkur aðeins framar á völlinn og svo fáum við klaufalegt mark á okkur eftir skyndisókn en þeir voru í sjálfu sér ekki mikið að skapa sér fram á við fram að því."
,,Menn voru kannski að einbeita sér að því að vera of yfirvegaðir, of rólegir, menn voru passívir og það kannski endurspeglast í því að við vorum ekki að vinna þennan seinni bolta."
,,Það er ekki bæði sleppt og haldið, við erum búnir að vera mjög yfirspenntir og fá á okkur klaufaleg rauð spjöld í undanförnum leikjum sem hefur kannski kostað okkur of mikið."
Viðtalið má sjá í heild sinni að ofan.
Athugasemdir