Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. ágúst 2014 11:00
Magnús Már Einarsson
Valencia blandar sér í baráttuna um Cleverley
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Valencia hefur lagt fram tilboð í Tom Cleverley miðjumann Manchester United.

Aston Villa lagði fram tilboð í leikmanninn í gær og þá hefur Hull einnig áhuga.

Hinn 25 ára gamli Cleverley er á förum frá United en hann á einungis eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Cleverley er ekki í miklum metum hjá stuðningsmönnum Manchester United en hann hefur ekki náð að láta ljós sitt skína með liðinu undanfarin tímabil.
Athugasemdir
banner